Heimskari en allt!!
19.05.2006 14:00:14 / L.J.

Kominn tími til..

Það er ekkert smá langt síðan ég bloggaði..

Er byrjaður að vinna í bæjarvinnuni með Reyni, Ella, Helga og Adda A.k.a. The BumbleBee Killer!

Erum bara búnir að vera í rusli þessa fyrstu daganna, sem sagt að týna rusl.. ;) Og við ættum án djóks að fá áhættu þóknun! Fyrsta daginn urðu við fyrir áras frá Doberman hundi og höfum alla daganna lennt í býflugunum!!! Þegar hundurinn kom stóð Helgi alveg rólegur og hræddist ekki þetta flykki sem kom hlaupandi á meðan við hinir flúðum í skjól.. En þegar býfflugurnar koma er Helgi fyrstur til að forða sér.. :haha:

Úrslita leikurinn í Meistardeildinni var á miðvikudaginn og var viðureign Börsunga gegn The Gunners(Arsenal) bara skemmtileg og skemmtileg.. Mér fanst Barcelona eiga sigurinn skilinn og var ánægður með þá þó svo að dómarinn hafi ekki verið góður og eyðilagt fyrir báðum liðum!! Vill óska Arsenal mönnum til hamingju með að Henry verði áfram en hann ætlar að skrifa undir 4 ára samning núna á næstu dögum.

Fimmtudagurinn var góður.. var í vinnunni í góðu fjöri hlustandi á Eurovision lög, svo náðum við strákarnir í einkunnirnar okkur í hádeginu og það gekk bara vel og kallinn er búinn með 114 einingar og á 26 eftir sem að ég ætla að taka á tveimur önnum og njóta lífsins ;) Svo um kvöldið var komið að stóru stundinni. Eurovision var flautað á kl. 7 á íslenskum tíma og var keppt í einhverri höll í Aþenu höfuðborg Grikklands. Það voru mörg góð lög í keppninni og gaman að horfa á! Þá var komið að okkar heitt elskuðu Silviu Night sem var búin að vera með svakaleg læti og yfirlýsingar á æfingum og blaðamanna fundum. Þegar Ísland var kynnt inn var búað á fullu þó að það hafi heyrst smá fagnaðarlæti inná milli.. En vá hvað maður myndi missa sig í stressi ef að það yrði búað svona áður en maður flytti lag!!!:$ Hún virtist líka vera stressuð því hún var andstutt og stundum skildist ekki alveg hvað hún var að segja.. en mjög gaman að horfa á framlag okkar Íslendinga í ár og Silvia á hrós skilið, hún er frábær söngvari og ennþá betri leikari..! Ég vill minna fólk á að það hefur verið viðlogandi við keppnina síðustu ár að það séu sambönd sem komi fólk í úrslit og skili stigunum.. Í gær voru 23 lönd sem tóku þátt og aðeins 10 sem fóru áfram og má þess til gamans geta að 7 þeirra voru austantjalds þjóðir en 3 frá norður evrópu og tvö af þeim komu frá norðurlöndunum.. Svíþjóð með Carollu sem vann keppnina fyrir Svía fyrir nokkrum árum og svo Lordi sem eru í ansi smekklegum búningum, fyrir Finna. En flott umgjörð um keppnina og svo er loka keppnin á laugardag þar sem að við Íslendingar verðum ekki með.. Kemur bara næst.. Áfram Ísland!:)

Svo í dag er meistara flokkur ÍR að fara á Flúðir að skemmta sér létt...:haha: Við byrjum á fótbolta milli eldri og yngri og yngri eru taldir sigurstranglegri í ár...! En svo er matur og menn fá sér létt í tána svo er haldið á Útlagann og slétt úr klaufunum fram á rauða nótt.. Morguninn eftir er það svo rafting í Hvítá kl. 10.00 og svo er haldið í bæjinn, farið í sund og loks á uppskeruhátíð meistaraflokksins þar sem verða einnig veitingar.. Svo að það verður gaman í kvöld á morgunn þar sem að Eurovision er einnig.. Svo sjáumst við öll hress í bænum á aðfaranótt Sunnudagsins.. ;)

Nýjir Sigurvegarar vikunnar :)

Síðar fólk..


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 12:35:45 / L.J.

Alþjóðlegt skákmót og Hringurinn mikli.

Komiði sæl, ég hef fréttir að færa ykkur og haldið ykkur nú!

Nú er í gangi alþjóðlegt skákmót á Kanarí undir nafninu Chess for Nations.

Okkar maður Haukur er staddur þar og er að dæma. Hann er nú í lögreglufylgd og ekkert hefur heyrst frá honum í 22:56:06 tíma/min/sek. Því að í gær voru Vígdís Finnbogadóttir og Berlusconi að etja saman hestum sínum og fór svo að Haukur dæmdi Berlusconi úr leik vegna ólöglegrar Drekavörn. Þetta þýðir að Vigdís leiðir mótið með 4 vinninga en Berlusconi kemur þar á eftir með 3. Berlusconi varð æfareiður þegar útskurðurinn var kveðinn upp af Hauki og réðst á hann en hann slapp og nú er sagt í ítölskum fjölmiðlum að útsendarar ítölsku mafíunnar séu að elta Hauk uppi en hann er í Lögreglu fylg einshvers staðar á Kanarí. Fylgjist með hér í DFS (Dumbz Frétta Stöðin) eftir nánari fréttum af Hauki.(Hér sést Berlusconi á blaðamanni fundi fyrr í  dag og í bakrunninum er íslenski fáninn. Berlusconi segir Íslendinga svikulu og hreint  leiðinlega þjóð!)

Gott fólk er Lord of the Rings bara uppspuni eða var þetta veruleiki ?

Nú hefur komið upp mál sem þykjir benda til þess að Lord of the Rings sé hreint alls engin skáldsaga heldur hafi þetta átt sér stað. Við höfðum samband við sagnfræðinginn Línus Gauta en hann segir að sumir sagnfræðingar telji að þegar Pangea( fornt meiginland) hafi haft að geyma menningar samfélög manna sem hafi eyðst vegna loftsteins sem útrýmdi einnig risa eðlunum. Þeir segja að bækur bendi til að það sé möguleiki að eitthvað svipað hafi gerst þá og er að gerast í Lotr. en þar hafi vondur konungur ætlað að eignast Pangeu og hann hafði hring sér á hönd sem talinn var vera vondur en þá komu nokkrar góðir konungar saman og vörðust. Hringurinn eini og sanni er fundinn og menn hafa þegar komið sér í viðbrags stöðu.

Við hjá DFS þökkum áhorfið. Veriði sæl.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 23:07:47 / Gaukurinn

Einn lítill troðinn...

Já ég ákvað að að henda inn eins og einni færslu hérna í kvöldsárið. Ég hef ekki verið að blogga mikið uppá síðkastið enda miklar annir hjá mér sem dómari í öllum þeim skákmótum sem hafa verið hérna á landi síðustu daga. Ég þurfti t.d. að dæma einn frá Rússlandi úr leik í dag þar sem hann lék kónginum ólöglega, en þar reyndi hann að svindla á sikiley-vörninni sem Úkraínumaðurinn var að spila. Ég hef verið að fá töluvert af hótunarbréfur frá Rússlandi og hef ég íhugað að hætta sem skákdómari ef þetta á að halda svona áfram.

En í dag fór ég að horfa á leik Fjölnis úr Grafarvogi og Fylkis úr Árbæ. Ég og Megane vodum mættir þarna í góðum fíling og fengum gott stæði fyrir miðjum velli. Svo hófst leikurinn og bang. Endaði ekki 1-0, ekki 2-0 ekki 3-0. Ef þið eruð að spyrja ykkur hvað ég ætla að halda áfram lengi þá segi ég uppí 10. Ha? hugsið þið. Já 10-0 endaði leikurinn og það fyrir Fylki.

En eftir þetta fór ég heim og ákvað að fara á leik Fjölnis og Keflavíkur í körfunni. Ég borgaði mig inn eins og sannur herramaður. Hélt að þetta kostaði svona 500-700 krónur, en nei!, 1000 kall á einn leik. Mér varð blöskrað. Svo þegar ég var búinn að finna mér sæti var Brynjar þarna bara, hey ég átti frímiða og ekki bara einn heldur tvo. Hefði ég verið með byssu á mér þarna hefði ég haft hana bara í vasanum. En svo að titlinum á færslunni. Það var þannig mál með vexti að Eiki aka. Krókódíla-Eiki sat við hliðina á mér í seinni hálfleik. Svo var verið að gefa bolta þarna og þá sá ég að Eika sár vantar bolta. Því þegar boltinn stefndi til okkar ákvað Eiki bara að hoppa fram á næsta bekk til að reyna að ná bolta. En undir honum varð svona 1 árs gamall strákur. Hérna má einmitt sjá þegar Eiki er að reyna að ná boltanum og strákurinn er við það að verða undir Eika. En þessi mynd er byrt með leyfi Sýnar enda er þetta ljósmynd sem tekin var þegar þetta gerðist. 

http://public.fotki.com/haukurinn/asd/untitled.html

Stráknum var brugðið og feldi nokkur tár. En maður vikunnar hélt bara cool-inu og horfði bar útí loftið og blístraði. Leikurinn endaði svo með sigri Keflavíkur.

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra enda allir orðnir leiðir bíst ég við. En þangað til næst, þangað til næst.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 01:45:36 / L.J.

Lítið um pisla

Sæl öll sömul.. :)

Ég hef verið óttalega latur við að skrifa pistal og vonandi skánar það aðeins núna þegar það er minna að gera í skólanum...! Ég á enmitt að skila 10 bls. ritgerð á morgunn um Heklu og húner ready to go og ég er bara sáttur með að vera búin með hana..

Það var víst verið að setja út á hversu latir við erum að blogga og það er kanski bara ágætt að benda okkur á það.. Anna var svo góð að benda okkur á þessa fullkomlega réttu staðreynd! Ég fór þá að athuga hvort að Anna væri sjálf að standa sig við að blogga á Kjúlla síðunni og fór þar inná eins og ég geri reyndar býsna oft.. Þá komst ég að því að Tara er Super-Girl blog heimsins!! Tara þú ert ótrúleg:D getur alltaf komið með eitthvað skemmtilegt fyrir okkur hin að lesa.. og Anna by the way var enn pistill eftir þig 8|:klikk:  Við erum mikið að spá í að gera tilboð í Töru og ég vill bara hér með spyrja Kjúllana hvort að hún Tara sé föl fyrir rétt verð?

Við auglýsum líka eftir gesta bloggurum... ef það hefur einhver áhuga á að gera pistil við og við hérna inná er það bara cool og við tökum við atvinnu umsóknum í komandi viku :D

Venga þess að svona langt var á milli blogga ætla ég að reyna að bæta ykkur það upp með einni góðri sögu af mér..

Sagan gerist í Breiðholtslaug, í skóla sundi í 4. bekk:

Rútan kom of seint með okkur eins og svo oft áður í sund tíma og við þurftum að drýfa okkur að klæða okkur úr, fara í sturtu og koma okkur út í laug! Við strákarnir vorum eld fljótir en ég var síðastur og var að drífa mig í sturtu.. Svo slökkti ég á henni og  tók sprettinn í átt að inni lauginni eins og maður á auðvitað aldrei að gera á blautum sundlauga gólfum því það er sleift!! :$

Þegar ég kem inn í inni laugina eru allir krakkarnir að synda í áttinu að hinum bakkanum svo ég hoppaði ofan í.. og ákkurat þegar ég lennti.. fann ég einhverja sérstaka tilfinningu..! Eitthvað var ekki eins og það átti að vera!! Ég leit niður og sá að ég stóð á Adams klæðunum einum ofan í lauginni!! :haha: Svo ég þaut upp úr lauginni og náði að komast upp úr áður en krakkarnir sneru við til að synda yfir aftur.. Ég hljóp inn í sturtu klefann, fann skýluna og skellti mér í hana og tók svo sprettinn aftur inn ganginn í átt að inni lauginni en í þetta skiptið var ég ekki með eins mikið jafnvægi og fyrr með þeim afleiðingum að ég steinlá á ganginum!:lol: Þá loks komst ég í sund tímann minn.. í tilheyrandi skýlu ;)

Ps. Komnir nýjir sigurvegarar vikunnar :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 19:36:42 / Gaukurinn

Snilld.

http://www.youtube.com/p.swf?video_id=kKGxaol4qws&eurl=&iurl=ht

Endilega líta á þetta. Þetta er tær!


» 3 hafa sagt sína skoðun